
![]() |
Frá Hesthúsahverfi í Búðardal er farið yfir vað á Laxá og síðan farinn reiðvegur sem að langmestu leiti fylgir Vesturlandsvegi. Farið er yfir gömlu brúna á Haukadalsá og er þar betra að teyma yfir á meðan ekki er búið að laga handrið á brúnni. Áningahólf eru tvö á leiðinni, annað við sauðfjárveikivarnagirðingu á milli Hrútsstaða og Þorbergsstaða og hitt í landi Álfheima rétt eftir að farið er yfir akveginn inn Haukadal. Leiðin er um 17 km. |
|---|---|
GPS punktar yfir stóran hluta leiðarinnar (farið frá Búðardal og sveigt niður að Miðá hjá Miðskógi, farið yfir hana og að Hamraendum): |
|
| Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |