
![]() |
Frá Ljárskógum er riðið upp með Fáskrúð í Ljárskógasel og er þokkalegur bílvegur þangað. Áfram er haldið upp með ánni og komið í leitarkofa Laxdælinga við Hvanneyrar. Skýr slóði er alla leið að kofanum og síðasta kaflann hægt að vera hvoru megin við ána sem vill. Áfram norður frá kofanum eru hins vegar engar götur en farið er upp með Stikukvísl og yfir Gaflfellsheiði hjá Orrustuhryggjum eða eftir þeim (leiðina þarf svolítið að velja eftir því hve blautt er) og loks niður hjá Heiðargili. Þar er mikilvægt að vera vel vestan við gilið (hafa gilið á hægri hönd þegar farið er niður). Áfram er haldið niður Brunngilsdalinn og annaðhvort að Þórustöðum eða Snartartungu.
|
|---|---|
GPS yfir alla leiðina frá Búðardal í Snartartungu: Leið 30 |
|
| Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér. |