Reiðleiðaefni:

Reiðleiðir: 36. Um Hvammssveit, Fellsströnd og Klofning

 

Stærri mynd ef smellt er

Frá Ljárskógum er farið um fjörur inn í Hvammsfjarðarbotn en ef ekki er fjara má ríða bakkana. Komið er á land við Hofakur og þaðan þarf að ríða þjóðveginn rétt út fyrir Kýrunnarstaði. Þar er tekinn fáfarnari vegur niður að Teigi og Ketilsstöðum. Síðan liggur slóð áfram með ströndinni hjá Skorravík og áfram uns komið er aftur á þjóðveginn við Skóga. Þá er riðinn stuttur kafli í "öfuga átt" að Hellu en þar er tekinn vegurinn upp í Efribyggð og honum fylgt hjá Svínaskógi, Lyngbrekku og Stóra-Múla. Komið er enn aftur á þjóðveginn kringum Strandir (Fellsströnd og Skarðsströnd) og honum fylgt um Klofning og í Skarð.

GPS yfir fjörur í Hvammsfjarðarbotni: Hvammsfjarðarbotn (Skarfsstaðir - Ljárskógarétt).

GPS yfir lítinn hluta: 29b, hluti af 30 og hluti af 36 (hér var farið frá Sámsstöðum í Ljárskógasel, niður með Fáskrúð í Ljárskógarétt og þaðan fjörur í Hóla í Hvammssveit).

Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar í samráði við landeigendur og bendum á lög og reglur þar að lútandi, sjá nánar hér.

 

 

Hestamannafélagið Glaður, Brekkuhvammi 10, 370 Búðardal. Tölvupóstur: Formaður | Vefstjóri