Eldri fréttir:

Niðurstöður Hestaþings og úrtöku

Laugardagur 12. júní 2021

Hestaþinginu okkar er lokið og niðurstöðurnar eru komnar inn á mótasíðuna.

Þessi hross og keppendur hafa unnið sér inn þátttökurétt á Fjórðungsmóti 2021 fyrir Glað:

B-flokkur ungmenna:

Arndís Ólafsdóttir með Styrk frá Kjarri

B-flokkur gæðinga:

Glanni frá Gillastöðum

Sátt frá Sveinatungu

Dregill frá Magnússkógum

Ester frá Gillastöðum

Varahestar B-flokk:

Tindáti frá Kollaleiru

Álfasteinn frá Magnússkógum

A-flokkur gæðinga:

Teningur frá Víðivöllum fremri

Kata frá Fremri Gufudal

Þróttur frá Lindarholti

Nóra frá Litlu Tungu 2

Breytingar á dagskrá

Föstudagur 11. júní 2021

Gerð hefur verið sú breyting á áður auglýstri dagskrá að úrslitakeppnin fer fram í sömu röð og forkeppnin, þannig að B-flokkur verður á undan A-flokknum i úrslitum eins og í forkeppni. Dagskránni hefur verið breytt að þessu leiti hér aðeins neðar á síðunni, sömuleiðis er þar búið að taka út þá dagskrárliði sem falla niður.

 

Einnig er rétt að vekja athygli á því að í gæðingatöltinu verða 2 inná í einu svo þar eru tvö holl.

Rásraðir á Hestaþinginu

Föstudagur 11. júní 2021

Gæðingatölt fullorðinsflokkur:

1. holl: Tígulás frá Hallsstöðum og Signý Hólm Friðjónsdóttir

1. holl: Blíða frá Grafarkoti og Anna Herdís Sigurbjartsdóttir

2. holl: Tindáti frá Kollaleiru og Elvar Logi Friðriksson

2. holl: Rispa frá Gillastöðum og Elisabeth Marie Trost

 

B-flokkur ungmenna:

  1. Arndís Ólafsdóttir og Styrkur frá Kjarri

 

B-flokkur gæðinga:

  1. Ester frá Gillastöðum og Elisabeth Marie Trost
  2. Tindáti frá Kollaleiru og Elvar Logi Friðriksson
  3. Dregill frá Magnússkógum og Arndís Ólafsdóttir
  4. Glanni frá Gillastöðum og Elisabeth Marie Trost
  5. Sátt frá Sveinatungu og Elvar Logi Friðriksson
  6. Álfasteinn frá Magnússkógum og Arndís Ólafsdóttir

 

A-flokkur gæðinga:

  1. Gæfa frá Hvítadal 2 og Laufey Fríða Þórarinsdóttir
  2. Kata frá Fremri-Gufudal og Styrmir Sæmundsson
  3. Forleikur frá Leiðólfsstöðum og Hlynur Guðmundsson
  4. Teningur frá Víðivöllum fremri og Elvar Logi Friðriksson
  5. Nóra frá Litlu-Tungu 2 og Laufey Fríða Þórarinsdóttir
  6. Þróttur frá Lindarholti og Sjöfn Sæmundsdóttir

Gæðingatölt í stað T3

Fimmtudagur 10. júní 2021

Á Hestaþinginu okkar verður keppt í Gæðingatölti í stað T3 vegna þess að ekki tókst að manna mótið með íþróttadómurum. Breyting hefur verið gerð í dagskránni hér fyrir neðan.

Hestaþing Glaðs 12. júní

Sunnudagur 6. júní 2021 - Breytt 10. júní 2021 - Breytt 11.06.2021

Hestaþing Glaðs verður haldið á reiðvellinum í Búðardal laugardaginn 12. júní næstkomandi. Mótið er um leið úrtaka fyrir Fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður í Borgarnesi 7.-11. júlí. Hestaþingið hefst kl. 10:00 og er opið öllum félögum í hestamannafélögum.

 

Dagskrá:
Kl. 10:00 Forkeppni
1. Gæðingatölt fullorðinsflokkur

2. B-flokkur ungmenna

3. B-flokkur gæðinga

          4. A-flokkur gæðinga
STUTT HLÉ
Úrslit
1. Gæðingatölt

2. B-flokkur ungmenna

3. B-flokkur gæðinga

4. A-flokkur gæðinga

 

Athugið að öll dagskráin er háð þátttöku í hverjum dagskrárlið og auglýst hér með fyrirvara um breytingar.

 

Bendum á að Dalakot verður með pizzahlaðborð.

 

Skráning:
Skráningar fara fram í Skráningakerfi SportFengs eins og venjulega, slóðin er http://skraning.sportfengur.com. Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær upplýsingar koma fram í lok skráningarferlisins.
Skráningargjald er kr. 1.500 í barnaflokk og unglingaflokk en kr. 2.500 í ungmennaflokk, B-flokk, A-flokk og tölt.

Skráningar þurfa að berast fyrir kl. 20:00 að kvöldi fimmtudagsins 10. júní. Sami tímafrestur gildir um greiðslu skráningagjalda.

Ef þið hafið einhverjar fyrirspurnir varðandi skráningu eða ef upp koma vandamál þá getið þið haft samband við Þórð í síma 893 1125 eða með netfangi thoing@centrum.is

 

Ráslistar verða birtir hér á vef Glaðs föstudaginn 11. júní.

Aðalfundur Glaðs 8. júní

Mánudagur 31. maí 2021

Aðalfundur Hestamannafélagsins Glaðs verður haldinn í Dalabúð þriðjudaginn 8. júní kl. 20:00.

 

Dagskrá fundarins:

  1. Kosning starfsmanna fundarins.
  2. Skýrsla stjórnar.
  3. Reikningar lagðir fram.
  4. Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga.
  5. Reikningar bornir undir atkvæði.
  6. Kosningar skv. 6 grein laga félagsins.
  7. Kosning nefnda.
  8. Ákvörðun árgjalds.
  9. Önnur mál.

Hestaþingið verður líka úrtaka fyrir FM

Fimmtudagur 6. maí 2021

Fjórðungsmót Vesturlands verður haldið í Borgarnesi 7. - 11. júlí næstkomandi. Ákveðið hefur verið að Hestaþing Glaðs verði jafnframt úrtökumót félagsins fyrir FM en Hestaþingið er fyrirhugað þann 12. júní næstkomandi.

 

Nánari upplýsingar um FM2021 eru á facebook síðu mótsins.

Vetrarleikum frestað

Föstudagur 16. apríl 2021

Það eru væntanlega allir búnir að átta sig á því að það verða ekki haldnir vetrarleikar á morgun þó svo það hafi verið áætlað í mótaskrá. Nú hafa sóttvarnareglur verið rýmkaðar nokkuð svo að okkur er líklega fært að halda mót en breytingin var gerð með of skömmum fyrirvara til að við gætum haldið mótið núna. Mótanefnd er að skoða það hvort hægt sé að finna aðra dagsetningu fyrir mótið og það verður þá að sjálfsögðu auglýst hér um leið og ákvörðun liggur fyrir.

Reiðnámskeið og hnakkakynning

Fimmtudagur 15. apríl 2021

Dagana 23. og 24. apríl ætla hjónin Anna S. Valdimarsdóttir og Friðfinnur L. Hilmarsson að koma til okkar og vera með reiðnámskeið og hnakkakynningu. Þau reka fyrirtækið Fákaland Export og eru með t.d. AV hnakkana (fakaland.is).


Anna og Friðfinnur hafa bæði verið mikið að kenna bæði hér á landi og erlendis. Anna kenndi um tíma Reiðmanninn, hún hefur mikla keppnisreynslu og hefur hún meðal annars keppt í Meistaradeildinni. Friðfinnur er menntaður hestaíþróttadómari.


Námskeiðið er sett upp sem 30 mínútna einkatímar þar sem styrkur og veikleiki hvers knapa er metinn og unnið með það í framhaldinu.

 

Verðið er 25.000 krónur fyrir Glaðsfélaga en 30.000 fyrir aðra.

 

Takmarkað pláss er í boði svo endilega skráið ykkur sem fyrst hjá Signýju í síma 868 3659 eða á Messenger.

 

Athugið að vegna sóttvarna gætum við þurft að bóka tíma í hnakkakynninguna svo endilega látið vita ef þið viljið koma og skoða hnakkana.

Ásetuæfingar í höllinni

Föstudagur 9.. apríl 2021

Núna um komandi helgi laugardag og sunnudag 10.-11. apríl, býður fræðslunefndin upp á ásetuæfingar í reiðhöllinni. Signý Hólm verður leiðbeinandi og Inga Heiða verður henni til aðstoðar.

 

Það eina sem þarf að koma með er hjálmur sem passar barninu. Hestur og hnakkur verður á staðnum. Eitt barn verður þjálfað í einu og gætt verður að sóttvörnum og við hjálpumst öll að og gætum þess að forðast hópamyndun.

 

Skráning er á facebook hjá Signýju fyrir kl. 20 í kvöld, föstudag. Verð er 5.000 krónur.

Töltmótinu aflýst aftur

Miðvikudagur 24. mars 2021

Nú er ljóst að ekkert verður af því að við höldum töltmótið okkar núna á laugardag eins og til stóð en að þessu sinni verðum við að hætta við vegna hertra reglna um sóttvarnir.

Töltmótið 27. mars

Föstudagur 19. mars 2021

Nú hefur verið ákveðið að laugardaginn 27. mars verði keppt í tölti T7 í stað slaktaumatölts og frjálsra æfinga. Mótið hefst kl. 13:00 og keppt verður á reiðvellinum.

 

Keppt verður í T7 í öllum flokkum og það á að ríða þannig; einn hringur hægt tölt, hægt niður á fet, snúið við, einn hringur frjáls ferð á tölti. Tveir eru inná í einu og öllum er stjórnað af þul. Keppt verður í OPNUM FLOKKI auk yngri flokka, háð þátttöku eins og vant er. Minnum á að unglinga- og ungmennaflokkur er sameinaður.

 

Dagskrá (með fyrirvara um þátttöku):

  1. Pollar, skráning á staðnum, klárað alveg
  2. Barnaflokkur - forkeppni
  3. Unglinga- og ungmennaflokkur - forkeppni
  4. Barnaflokkur - úrslit og verðlaunaafhending
  5. Unglinga- og ungmennaflokkur - úrslit og verðlaunaafhending
  6. Hlé
  7. Opinn flokkur - forkeppni
  8. Hlé í 20 mínútur
  9. Opinn flokkur - úrslit og verðlaunaafhending

 

Skráningar:
Skráning er í Skráningakerfi SportFengs eins og venjulega. Unglingar og ungmenni skrá sig í Ungmennaflokk. Þarfnist einhver aðstoðar vegna skráninga má hafa samband við Þórð í 893 1125 eða thoing@centrum.is.
Skráningargjald er 1.000 krónur og skráningarfrestur er til klukkan 20:00 á fimmtudagskvöldið 25. mars. Pollar eru skráðir á mótsstað og greiða ekki skráningargjald.

Hestanudd og heilsa

Þriðjudagur 16. mars 2021

Hún Auður hestanuddari ætlar að koma til okkar laugardaginn 20. mars og halda örnámskeið í hestanuddi og vera með verklegar æfingar.

 

Námskeiðið byrjar Kl. 11.

Kl. 13:30

 

Áætlaður er að námskeiðið standi til kl. 16-17. Verð 4.000.

 

Sunnudaginn 21. mars ætlar Auður að taka hesta í meðferð ef áhugi er fyrir því en það þarf að bóka tíma fyrirfram. Signý tekur við skráningum í síma 868 3659.

Töltmóti aflýst eða frestað

Föstudagur 12. mars 2021

Því miður er ónóg þátttaka í töltmótinu okkar sem halda átti á morgun svo ekki verður af mótahaldi núna. Til skoðunar er að finna aðra dagsetningu fyrir mótið og það verður þá auglýst fljótlega.

Töltmótið 13. mars

Mánudagur 8. mars 2021

Á næsta móti verður keppt í tölti. Mótið verður laugardaginn 13.mars og hefst kl. 13:00.

 

ATHUGIÐ: Mótið verður haldið á reiðvellinum! 

 

Keppt verður í T7 í öllum flokkum og það á að ríða þannig; einn hringur hægt tölt, hægt niður á fet, snúið við, einn hringur frjáls ferð á tölti. Tveir eru inná í einu og öllum er stjórnað af þul. Keppt verður í OPNUM FLOKKI auk yngri flokka, háð þátttöku eins og vant er. Minnum á að unglinga- og ungmennaflokkur er sameinaður.

 

Dagskrá (með fyrirvara um þátttöku):

  1. Pollar, skráning á staðnum, klárað alveg
  2. Barnaflokkur - forkeppni
  3. Unglinga- og ungmennaflokkur - forkeppni
  4. Barnaflokkur - úrslit og verðlaunaafhending
  5. Unglinga- og ungmennaflokkur - úrslit og verðlaunaafhending
  6. Hlé
  7. Opinn flokkur - forkeppni
  8. Hlé í 20 mínútur
  9. Opinn flokkur - úrslit og verðlaunaafhending

 

Skráningar:
Skráning er í Skráningakerfi SportFengs eins og venjulega. Unglingar og ungmenni skrá sig í Ungmennaflokk. Þarfnist einhver aðstoðar vegna skráninga má hafa samband við Þórð í 893 1125 eða thoing@centrum.is.
Skráningargjald er 1.000 krónur og skráningarfrestur er til klukkan 20:00 á fimmtudagskvöldið 11. mars. Pollar eru skráðir á mótsstað og greiða ekki skráningargjald.

 

Minnum einnig á næsta mót sem verður laugardaginn 27.mars. Þá verður keppt í frjálsum æfingum og slaktaumatölti.

Töltmótið verður laugardaginn 13. mars

Fimmtudagur 4. mars 2021

Mótanefnd hefur ákveðið að færa tölmótið, það hafði verið áætlað á fimmtudagskvöldi 11. mars en nú er ákveðið að halda það á laugardeginum 13. mars. Mótið verður nánar auglýst á næstunni.

Rásraðir í þrígangi

Laugardagur13. febrúar 2021

Pollaflokkur:

Skráð á staðnum

 

Unglinga- og ungmennaflokkur:

  1. Juliane Emilie Stahl og Skjaldborg frá Búðardal
  2. Andri Óttarr Skjaldarson og Gjóska frá Búðardal
  3. Elna Rut Haraldsdóttir og Hryðja frá Svarfhóli
  4. Katrín Einarsdóttir og Þengill frá Spágilsstöðum

 

Opinn flokkur:

  1. Dóróthea S Unnsteinsdóttir og Valíant frá Lindarholti
  2. Einar Hólm Friðjónsson og Vinur frá Hallsstöðum
  3. Heiðrún Sandra Grettisdóttir og Skellibjalla frá Hofakri
  4. Sjöfn Sæmundsdóttir og Þróttur frá Lindarholti
  5. Dagný Karlsdóttir og Kvistur frá Geirmundarstöðum
  6. Jón Ægisson og Glanni frá Gillastöðum
  7. Einar Hólm Friðjónsson og Hrólfur frá Þverholtum
  8. Dóróthea S Unnsteinsdóttir og Valur frá Lindarholti
  9. Monika Backman og Magni frá Svarfhóli
  10. Eyþór Jón Gíslason og Sjarmi frá Spágilsstöðum
  11. Katrín Einarsdóttir og Rödd frá Spágilsstöðum
  12. Heiðrún Sandra Grettisdóttir og Snáði frá Hofakri
  13. Eyrún Agnarsdóttir og Roka frá Hallsstöðum
  14. Harald Óskar Haraldsson og Aska frá Geirmundarstöðum
  15. Sjöfn Sæmundsdóttir og Perla frá Lindarholti
  16. Jón Ægisson og Ester frá Gillastöðum
  17. Dóróthea S Unnsteinsdóttir og Maístjarna frá Lindarholti

Þrígangur laugardaginn 13. febrúar

Þriðjudagur 9. febrúar 2021

ATHUGIÐ: Mótið verður haldið á reiðvellinum vegna sóttvarnaráðstafana og reglna yfirvalda vegna Covid-19! Mótið hefst kl. 13:00.

 

Dagskrá (með fyrirvara um þátttöku í öllum flokkum):

  1. Pollar (klárað alveg)
  2. Þrígangur - barnaflokkur - forkeppni
  3. Þrígangur - unglinga- og ungmennaflokkur - forkeppni
  4. Þrígangur - barnaflokkur - úrslit og verðlaunaafhending
  5. Þrígangur - unglinga- og ungmennarflokkur - úrslit og verðlaunaafhending
  6. Þrígangur – opinn flokkur – forkeppni
  7. Hlé í 20 mínútur
  8. Þrígangur – opinn flokkur - úrslit og verðlaunaafhending

 

Fyrirkomulag þrígangsins:

Einn er í braut í einu í öllum flokkum.
Börn ríða 2½-3 hringi og sýna þrjú af þessum fjórum atriðum: 1 hring á tölti á frjálsum hraða, 1 hring á brokki, ½ hring á feti og 1 hring á stökki. Í úrslitum sýna þau fet, brokk og tölt. Lægsta einkunnin dettur út þannig að aðaleinkunn reiknast sem meðaltal tveggja bestu gangtegundanna.

Unglingar, ungmenni og fullorðnir ríða 3½ hring: ½ á feti, 1 á tölti á frjálsum hraða, 1 á brokki og 1 á stökki. Lægsta einkunnin dettur út þannig að aðaleinkunn reiknast sem meðaltal þriggja bestu gangtegundanna. Úrslitin verða eins.

Ef keppendur í opnum flokki verða fleiri en 12 verða riðin A og B úrslit.

 

Skráningar:
Skráning er í Skráningakerfi SportFengs eins og venjulega en keppnisgreinin þrígangur heitir þar reyndar Fjórgangur V6 og Unglinga- og ungmennaflokkur heitir þar bara Ungmennaflokkur. Þarfnist einhver aðstoðar vegna skráninga má hafa samband við Þórð í 893 1125 eða thoing@centrum.is.
Skráningargjald er 1.000 krónur og skráningarfrestur er til miðnættis á föstudagskvöldi 12. febrúar. Pollar eru skráðir á mótsstað og greiða ekki skráningargjald.

Franziska í Djúpadal

Fimmtudagur 28. janúar 2021

Nýr Glaðsfélagi skrifaði félaginu og óskaði eftir að koma þessu á framfæri:

"Ég heiti Franziska Solte og flutti til Íslands í September í fyrra frá þýskalandi ásamt sambýlismanninum mínum, Jóhann Samúelsson, og syninum okkar, Júlían Ragnar. Við erum stödd í Djúpadal í Reykhólahreppi eins og er en erum að leita okkur að jörð til framtíðar.

 

Ég kom fyrst til Íslands 1999 og langaði eiginlega að flýtja hingað síðan. Ég hef starfað með íslenskum hestum í þýskalandi og á Íslandi í tæp 20 ár og hef verið að leigja aðstöðu í þýskalandi í 16 ár. Þar var ég með hestar í fóðrun, tamningar, reiðskóla fyrir krakka og fullorðna, ræktun, seldi reiðtygi eins og hnakkar og járnaði sjálf. Alltaf þegar tíminn leyfði var ég á Íslandi að temja.

 

Auðvitað langar mig að halda áfram í hestum hérna líka, þannig að það væri gaman að fá að kynnast ykkur og kannski setja upp námskeið fyrir krakka eða líka fullorðna. Svo ef það vantar járningar eða þarf að skoða hvort hnakkinn passar á hestinn er hægt að redda því. Einnig er ég stundum með fólk úti sem er að leita sér að hestum, þannig að ef þið hafið þægar reiðhesta til sölu væri gaman að skoða það líka.


það er hægt að ná í mig á facebook og í síma 892 6564. Hlakka til að kynnast ykkur og takk fyrir að mega vera með í félaginu!"

Námskeið í frumtamningu og grunnþjálfun

Fimmtudagur 14. janúar 2021

Guðmundur Margeir Skúlason reiðkennari ætlar að koma til okkar og bjóða upp á þriggja helga námskeið í frumtamningu og grunnþjálfun hesta dagana 29. -31. janúar, 5. -7. febrúar og 19. -21. febrúar.

 

Námskeiðið hentar öllum og bæði má koma með alveg ósnert tryppi og eins með meira taminn reiðhest og þá rifja upp grunninn. Þetta er góð leið til að kynnast ungum eða nýjum hesti, fá leiðsögn og hjálp fyrstu skrefin. Þetta er bæði sýnikennsla og einkatímar en mælt er með að sitja allt námskeiðið, fylgjast með hinum og læra af, því enginn hestur er eins og annar .

 

Fyrirkomulag er: 30 mín. einkakennsla en bóklegir tímar eru sameiginlegir.
Tímafjöldi:

Verklegir tímar = 15

Bóklegir tímar = 2

Sýnikennsla = 3

 

Námskeiðshelgi hefst á seinni hluta föstudags með sýnikennslu og svo einu rennsli. Svo verður kennt allan daginn bæði laugardag og sunnudag. Sama fyrirkomulag verður allar þrjár helgarnar.


Nemendur mæta með eigin hest og búnað.

 

Eftirfarandi atriði verða tekin fyrir á námskeiðinu:

 

Verðið er 63.000 kr.
Signý tekur við skráningum í síma: 868 3659

 

Athugið að það er hámarksfjöldi á námskeiðið svo nú gildir að skrá sig sem fyrst.

Peysur

Fimmtudagur 14. janúar 2021

Í fyrra fengum við peysur frá 66° norður, merktar Glað. Ef einhverjir vilja panta peysur þá verður safnað í aðra sendingu hið fyrsta.

 

Nánari upplýsingar: Signý 868 3659, Sigrún Hanna 862 5718 eða Inga í Messenger.

Skáney 9. -11. apríl

Fimmtudagur 14. janúar 2021

Fræðslunefnd er búin að taka frá helgina 9. -11. apríl. Nánar auglýst síðar.

Reiðnámskeið með Sjöfn hefst 18. janúar

Fimmtudagur 14. janúar 2021

8 vikna reiðnámskeið hefst núna mánudaginn 18. janúar. Kennari er Sjöfn Sæmundsdóttir.

 

Fyrirkomulag:

 

GLAÐSFÉLAGAR:
17 ára og yngri: Einkatímar: 24.000 kr. Hópatímar: 12.000 kr.

Fullorðnir: Einkatímar: 32.000 kr. Hópatímar: 20.000 kr.
UTAN FÉLAGS:
Allur aldur: Einkatímar: 40.000 kr. Hópatímar: 24.000 kr.

 

Signý tekur við skráningum í síma 868 3659 og Sigrún í síma 862 5718.

Umhirða reiðtygja

Mánudagur 4. janúar 2021

Nú er komið að fyrsta hittingi vetrarins á vegum fræðslunefndar. Nefndarliðum langar til að bjóða börnum á miðstigi að koma og hittast í hesthúsinu hennar Ingu Heiðu á fimmtudaginn kemur (7. janúar) kl. 18:30. Allir eiga að koma með hnakkinn sinn og beislisbúnað því það á þrífa reiðtygin og koma þeim í stand fyrir veturinn.

  

Yngsta stigi er svo boðið að koma á mánudaginn 11. janúar kl. 18:00 og elsta stiginu á þriðjudaginn 12. janúar kl. 18:00.

 

Nefndarliðar verða með sápur, svampa og Gandur leðurfeiti en endilega hafið með ykkur tuskur til að bera feitina á með.

 

Skráningar hjá Sigrúnu (862 5718 eða á facebook).

Eldri fréttir

Fréttir frá 2020

Fréttir frá 2019

Fréttir frá 2018

Fréttir frá 2017

Fréttir frá 2016

Fréttir frá 2015

Fréttir frá 2014

Fréttir frá 2013

Fréttir frá 2012

Fréttir frá 2011

Fréttir frá 2010

Fréttir frá 2009

Fréttir frá 2008

Fréttir frá 2007

Fréttir frá 2006

Fréttir frá 2005


Fara efst á síðu

Hestamannafélagið Glaður, Stóra-Vatnshorni, 371 Búðardal. Tölvupóstur: Formaður | Vefstjóri