
Á kortinu eru reiðleiðir í Dalabyggð skv. ósamþykktu aðalskipulagi sem enn er í vinnslu. Aðalleiðir (mikið farnar) eru bláar en aukaleiðir rauðar, þær eru sumar erfiðar og margar hverjar alls ekki færar nema í samráði við landeigendur. Grænt er svo þar sem ríða þarf á akvegi. Fyrir neðan kortið er svo listi yfir allar leiðirnar, þar má smella á reiðleið og nálgast betra kort af leiðinni og frekari upplýsingar. Það er líka hægt að smella á leið á kortinu á þessari síðu.
Kortin sem fylgja hverri leið eru því miður ekki mjög nákvæm. Óvíst er á þessari stundu hvort hægt verður að birta betri kort. Leiðarlýsingar eru ekki heldur nákvæmar, a.m.k. ekki enn sem komið er og vísast í ritaðar heimilidir hvað þær varða (sjá heimildaskrá). Víða vantar GPS punkta en markmiðið er að þeir verði til fyrir flestar og helst allar leiðirnar. Við skorum því á allt hestaferðafólk sem á GPS punkta af einhverjum að þessum reiðleiðum að hafa samband við vefstjóra. Allir GPS punktar á þessum vef eru á .gdb formi fyrir Garmin tæki en hægt er að útvega þá á öðru formi ef haft er samband við vefstjóra. Öll gögn eru WGS 84.
Hér er prentvænt kort af öllum reiðleiðunum, 3,9 MB. Gott er að prenta það út á A3 pappír (eða jafnvel enn stærri) hafi fólk möguleika á slíku.
Rauður þríhyrningur á korti táknar aðvörun eða athugasemd sem þá er nánar skýrð í texta um viðkomandi reiðleið. Þetta þýðir þó að sjálfsögðu ekki að ekki þurfi að gæta varúðar þó ekki sé rauður þríhyrningur við reiðleið!
Um tilurð þeirra gagna og upplýsinga sem hér eru birtar má lesa hér. Vinsamlegast sendið vefstjóra póst ef þið sjáið villur eða hafið aðrar athugasemdir.
Við hvetjum hestamenn til að skipuleggja ferðir sínar ætíð í samráði við landeigendur og til að sýna landinu og landeigendum tillitsemi. Við bendum sérstaklega á lög þar að lútandi, sjá nánar hér.